Gjögur greiðir starfsfólki afkomubónus

Höfnin á Grenivík.
Höfnin á Grenivík.

Útgerðarfyrirtækið Gjögur hf. á Grenivík greiddi starfsfólki sínu í landvinnslu 300.000 krónur auk orlofs í afkomubónus í desember. Upphæðin miðast við fullt starf og greiðist hlutfallslega út frá starfshlutfalli og starfstíma á árinu. Tilefnið er góð afkoma landvinnslunnar á Grenivík á árinu. Einnig fá starfsmenn veglega jólagjöf frá fyrirtækinu.

Greint var frá því í fréttum að útgerðarfyrirtækið Samherji hf. greiddi landsvinnslufólki 378 þúsund krónur í desemberuppbót. Samherji greiddi aukalega 72 þúsund krónur í orlofsuppbót til starfsmanna í maí og greiðir því 450 þúsund krónur á hvern starfsmann umfram kjarasamninga á árinu.

Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, fagnaði þessu og hvatti í kjölfarið önnur fyrirtæki að gera slíkt hið sama.

throstur@vikudagur.is

Nýjast