Gjafasjóðurinn hefur rýrnað ansi hratt á undanförnum árum. Við erum mjög þakklát öllum þeim sem hafa komið hingað færandi hendi. Í fyrra voru keypt tæki fyrir samtals 43 milljónir króna sem tækjasjóður fjármagnaði, þannig að þessi sjóður er okkur afar mikilvægur. Framlög frá einstaklingum, félagasamtökum, fyrirtækjum og stofnunum renna í þennan sjóð, segir Bjarni Jónasson forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri. Eins og fram hefur komið í Vikudegi vantar um 100 milljónir króna á næsta ári til að hægt sé að endurnýja tæki stofnunarinnar. Ítarlega er rætt við Bjarna í prentútgáfu Vikudags.