Sigurjón Már Svanbergsson opnar ljósmyndasýningu í Flóru í Hafnarstræti 90 á Akureyri á laugardaginn. Sýnigin nefnist "Girðingar," og sýnir Sigurjón ljósmyndir sem teknar voru á filmuvélar.
girðing -ar, -ar KVK 1 það að girða 2 það sem girt er (með) kringum e-ð > gaddavírsgirðing / girðingarstaur 3 afgirt svæði > girðingarhólf hólf í girðingu 4 staðbundið klettabelti
Sigurjón segir um sýninguna: Girðingar hafa alltaf einhvernvegin heillað mig, þessar dæmigerðu íslensku sveitagirðingar, ýmist á kafi í vatni, snjó eða liggjandi á sinu eftir snjóþungan vetur. Þessar myndir sem hér eru til sýnis eru teknar á haustmánuðum 2012 og er mín fyrsta tilraun til að fanga girðingar á filmu.
Sigurjón Már Svanbergsson er fæddur, uppalinn og búsettur á Akureyri, hann hefur brennandi áhuga á filmuljósmyndun, tekur að mestu leyti á svart hvítar filmur og framkallar filmurnar sjálfur, ásamt því að framkalla á pappír í myrkraherbergi í kjallara Flóru.
Ef litfilmur fara í myndavélar hans, þá eru þær í langflestum tilfellum útrunnar (heillast af þessum undarlegu litum í þeim).
Hann tekur mest á medium format filmuvélar, Mamiya RZ67 og Hasselblad, einnig aðrar eldri vélar með sál og reynslu.
Sýningin er öllum opin á opnunartíma Flóru mánudaga til föstudaga kl. 11-13 og 16-18 og laugardaga kl. 13-16 og stendur til laugardagsins 9. mars 2013, segir í tilkynningu.