Gera hér stórátak í samgöngumálum

Erla Sigríður Ragnarsdóttir
Erla Sigríður Ragnarsdóttir

Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi vegna komandi alþingiskosninga og óska  eftir stuðningi í 2.-3. sætið.                                                                                                          

Ég er fædd í Reykjavík, er uppalin á Egilsstöðum en bý nú í Hafnarfirði ásamt eiginmanni og þremur börnum. Ég starfa sem framhaldsskólakennari við Flensborgarskólann í Hafnarfirði og er sviðsstjóri félagsgreina við skólann. Að auki hef ég starfað samhliða kennslu sem dagskrárgerðar- og fréttamaður á RÚV. Ég hef verið virkur þátttakandi í ýmsu félagsstarfi, s.s. starfað með kvennahljómsveitinni Dúkkulísur, setið í stjórn félags sögukennara, tekið þátt í samstarfi framhaldsskóla á Norðurlöndum um lýðræði og sjálfsímynd þjóða ásamt því að sinna hinum ýmsu félagsstörfum tengdum börnum sínum.              

Hvers vegna er ég að bjóða mig fram? Ég hef alla tíð fylgst með stjórnmálum og bæði menntun mín og störf í gegnum tíðina hafa tengst stjórnmálaumræðu í landinu. Ég er talskona lifandi stjórnmála þar sem tekist er á á jákvæðan og mannlegan hátt, vandað er til orðræðu og gengið hiklaust til verka. Ég hef víðtæka reynslu af félagsmálum og veit fátt eitt skemmtilegra en að starfa með góðu fólki og finna þann drifkraft sem verður gjarnan til þegar einstaklingar taka höndum saman og veita góðum hugmyndum brautargengi. Sem betur fer hafa margar slíkar hugmyndir orðið að veruleika í kjördæminu. Ég hef fylgst grannt með uppbyggingu atvinnu- og menningarlífs í kjördæminu og eldmóði Austfirðinga og Norðlendinga bæði úr nálægð og fjarlægð og ekki getað annað en smitast af kraftinum. Í ljósi þessa langar mig að bjóða fram krafta mina til að vinna fyrir kjördæmið. Hingað liggja mínar rætur og hér hlaut ég mitt pólitíska uppeldi. Það væri mér afar kært að fá tækifæri til að vinna fyrir æskustöðvarnar.

Ég veit að þau eru mörg málin sem brenna á fólki. Að mínu mati þarf  að gera hér stórátak í samgöngumálum; fylgja þarf fast eftir fyrirhuguðum framkvæmdum við Norðfjarðargöng og Seyðisfjarðargöng verða að vera í algjörum forgangi. Einnig er mikilvægt að efla þjónustu og þau augljósu tækifæri sem liggja í flugsamgöngum á Egilsstaða- og Akureyrarflugvelli. Mjög mikilvægt er að styrkja þjóðveginn á milli Norður- og Austurlands og ef að reiknikúnstir vinstri manna í núverandi ríkisstjórn eru réttar varðandi Vaðlaheiðargöng þá tek ég þeim framkvæmdum fagnandi. Samvinna á milli byggðarlaga og fjórðunga er það sem koma skal, hvort sem um er að ræða í heilbrigðis- mennta- eða atvinnumálum og í nútímasamfélagi tækninýjunga og þróunar ætti fjarlægð, eða vegatálmar í bókstaflegri merkingu, ekki að vera fyrirstaða samstarfs. 

Ég hef miklar áhyggjur af undirstöðum velferðakerfisins og tel mikilvægt að huga að sjúkraflutningum við landsbyggðina og styrkja grunnþjónustuna heima í héraði. Starfsumhverfi fyrir starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar verður að vera viðunandi, ná þarf samningum til lengri tíma við tannlækna vegna tannviðgerða barna og tryggja öldruðum áhyggjulaust ævikvöld í heimabyggð. Menntakerfið þarf að stórefla en í því felast tækifæri 21. aldar, með fjölbreyttu námsframboði, samfellu skólastiga, frelsi skólanna til að laga sig að mismunandi þörfum nemenda og samvinnu skólanna við atvinnulífið. Þekking mín á starfi kennara í framhaldsskóla getur nýst við að gera gott menntakerfi enn betra og því býð ég hér með fram krafta mína til að móta skólakerfi til framtíðar.

Að lokum: Ég geri mér grein fyrir því að eina leiðin til að styrkja þessar grunnstoðir samfélagsins er að huga að atvinnulífinu og til þess treysti ég Sjálfstæðisflokknum best. Ég vil taka þátt í því að byggja upp öflugt atvinnulíf að nýju í kjördæminu. Mestu skiptir þar um að veita atvinnulífinu það svigrúm og frelsi til að standa á eigin fótum og verða arðbært. Það er hvorki gert með því að flækja skattaumhverfi fyrirtækja né með því að halda verklegum framkvæmdum í biðstöðu, heldur með því bjóða upp á einfalt og traust skattkerfi og stuðla að endurnýjun og nýsköpun í atvinnulífi landsmanna. Tækifærin til þess eru svo sannarlega til staðar á Norður- og Austurlandi; í ferðaþjónustu, iðnaði, hátækni og skapandi greinum. Nýtum tækifærin - þannig mun okkur öllum farnast best.

 

Erla Sigríður Ragnarsdóttir býður sig fram í 2.-3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi

Nýjast