Helena Þ. Karlsdóttir, lögfræðingur, á Akureyri gefur kost á sér í 3. - 4. sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Helena hefur víðtæka reynslu af félagsmálum. Hún er ritari Samfylkingarinnar og situr í stjórn og framkvæmdastjórn flokksins. Hún er varaþingmaður og var bæjarfulltrúi á síðasta kjörtímabili.
Hún sat í stjórn Samfylkingarinnar á Akureyri sem formaður og varaformaður um nokkurra ára skeið, hefur setið í nefndum og ráðum á vegum Akureyrarbæjar og ríkisins og hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Samfylkinguna. Helena segir að margt hafi áunnist í baráttunni við endurreisn samfélagsins en enn sé verk að vinna. Hún vill leggja sitt að mörkum við áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins með grunngildi jafnaðarmanna að leiðarljósi. Hún leggur áherslu á gott velferðarkerfi, öflugt atvinnulíf, eflingu byggða og bættar samgöngur.