Garpar Íslandsmeistarar í krullu

Lið Garpa. T.v. Kristján Bjarnason, Ólafur Hreinsson, Hallgrímur Valsson, Gunnar H. Jóhannesson og Á…
Lið Garpa. T.v. Kristján Bjarnason, Ólafur Hreinsson, Hallgrímur Valsson, Gunnar H. Jóhannesson og Árni Grétar Árnason.

Garpar eru Íslandsmeistarar í krullu eftir stórsigur á Skyttunum í úrslitaleik, 9-0, sem fram fór nýlega í Skautahöllinni á Akureyri. Þetta er í annað sinn sem Garpar verða Íslandsmeistarar en Mammútar unnu bronsið með sigri á Ís-lendingum.

Sjö lið, öll úr Krulludeild Skautafélags Akureyrar, tóku þátt í deildarkeppni sem fram fór í janúar, febrúar og mars. Fjögur þeirra áttust svo við í úrslitakeppni. Þetta er í tólfta skiptið sem keppt er um Íslandsmeistaratitilinn í krullu en Íslandsmótið fór fyrst fram 2002. Keppt er um svokallaðan Wallace-bikar, sem gefin var af hjónum af vestur-íslenskum ættum í Seattle í Bandaríkjunum í tilefni af vígslu Skautahallarinnar á Akureyri.

Nýjast