Nú þegar snjóskaflar bæjarins eru óðum að bráðna kemur ýmislegt í ljós undan ísnum. Meðfylgjandi mynd var tekin á horni Eyrarvegar og Hjalteyrargötu en þar hefur snjó af götunum verið mokað í haug í vetur. Kantsteinar hafa brotnað og segir Gunnþór Hákonarson yfirverkstjóri hjá Akureyrarbæ að alltaf sé töluvert um slíkar skemmdir. Hann álítur að skemmdirnar séu svipaðar og á undanförnum árum.
Viðgerðir eru þegar hafnar, en taka eðlilega nokkurn tíma. Torfusneplar eru líka áberandi á þessum árastíma og við reynum eftir bestu getu að lagfæra skemmdirnar. Mér sýnist ástandið vera svipað og unanfarin ár.