Ganga og bíó í tilefni kvennréttindadagsins

Í tilefni kvenréttindadagsins í dag þann 19. júní verður boðið upp á kvennasögugöngu um Oddeyrina á Akureyri og kvikmyndasýningu í Sambíó. Saga kvenna á eyrinni er mörgum hulin og því gefst hér kjörið tækifæri til að fá innsýn í líf og störf þeirra  en konur á eyrinni sáu t.d. um ýmiskonar rekstur um aldarmótin 1900 og fram á miðja 20. öld.  

Guðfinna Hallgrímsdóttir og Hallgrímur Skaptason munu leiða gönguna og varpa ljósi á líf kvenna og ýmsar uppákomur, hefðir og venjur sem ríktu á eyrinni. Kvennasögugangan hefst við Ráðhústorg kl. 16:20 og lýkur við Gamla Lund.

Að göngu lokinni, kl. 18.00 er göngufólki boðið upp á sýningu í Sambíói á sænsku verðlaunamyndin Monika Z sem fjallar um ævi djass-söngkonunnar Monicu Zetterlund sem lést í eldsvoða á heimil sínu í Stokkhólmi fyrir átta árum. Hún var um tíma ein fremsta djasssöngkona heims og söng meðal annars inn á plötu Billy Evans – Waltz for Debby. Aðalleikona myndarinnar er hin íslenskættaða Edda Magnason og einnig leikur Sverrir Guðnason stórt hlutverk í myndinni. Þau hlutu á dögunum sænsku kvikmyndaverðlaunin, Gullbjölluna, fyrir leik sinn.

Nýjast