Eimskips gámarnir við Brekkuskóla á Akureyri, sem notaðir voru við AK-Extreme snjóbrettakeppnina í byrjun apríl, standa enn óhaggaðir þrátt fyrir að þrjár vikur séu liðnar frá því keppnin var haldin. Hilmar Þór Sigurjónsson, einn af aðstandendum keppninnar, vonast til þess að gámarnir verði fjarlægðir í byrjun næstu viku en hann segir röð atvika hafa orðið til þess að gámarnir standa enn.
Þetta er búin að vera algjör martröð fyrir okkur mótshaldara. Strax á mánudeginum eftir keppnina stóð til að fjarlægja gámana en þá var stóri kraninn hjá Slippnum upptekinn. Daginn eftir var brjálað veður og svo kom snjór í brekkuna og þar af leiðandi ekki hægt að nota kranann," segir Hilmar.
"Um síðustu helgi kom svo í ljós að kraninn var pantaður á Sauðárkrók og á leiðinni þangað bilaði kraninn við Varmahlíð. Þetta er hreint með ólíkindum. Þetta lítur þannig út að við höfum bara labbað í burtu frá þessu en svo er alls ekki. Núna er beðið eftir svokölluðum millikassa í kranann svo hægt sé að fjarlægja gámana. Við vonum að það verði á mánudag eða þriðjudag í næstu viku, segir Hilmar.
throstur@vikudagur.is