Við höfum ekki ákveðið hvaða hlutverki húsið á að gegna í framtíðinni, tilgangurinn með kaupunum var aðallega að bjarga sögulegum verðmætum. Þetta er fallegt hús með nokkuð merkilega sögu og þess vegna mikilvægt að gera það upp og varðveita, segir Hjörtur Fjeldsted. Hjónin Auður Helga Skúladóttir og Hjörtur keyptu húsið og hafa fengið leyfi bæjaryfirvalda til að láta það standa í eitt ár á opnu svæði við Laufásgötu. Um árabil var rekin skipasmíðastöð í húsinu og síðar sprautuverkstæði. Árið 1996 var húsið selt til brottflutnings og hefur síðan þá staðið við Frostagötu. Í síðustu viku var það svo flutt á nýjan stað á Eyrinni.
karleskil@vikudagur.is