Gagnrýnir L-listann harðlega

Njáll Trausti Friðbertsson.
Njáll Trausti Friðbertsson.

Njáll Trausti Friðbertsson varabæjarfulltrúi á Akureyri hefur sagt sig úr starfshópi sem vinnur að gervigrasvelli á KA-svæðinu. Njáll Trausti er ósáttur við stuttan framkvæmdartíma en fyrsta skóflustungan var tekin 7. janúar sl. og áætlað að völlurinn verði tilbúinn í lok maí. „Grunnpunkturinn í þessu máli er að meirihluti L-listans tókst ekki að halda nógu vel utan um verkefnið, það er að tengja saman samninginn við KA um lagningu gervigrasvallar, deiliskipulag fyrir svæðið og fjárhagsáætlun bæjarins.

Verkefnið lendir því í tímaþröng, sem við viljum forðast með opinberar framkvæmdir,“ segir Njáll Trausti.

„Gagnrýni mín snýr einungis að fulltrúum L-listans í þessu ferli, sem hefði að mínu mati mátt standa betur að verki. Þar vantaði einfaldlega betri yfirsýn yfir það hvernig staðið yrði sem allra best að verkefninu.“

throstur@vikudagur.is

Nánar um málið í Vikudegi sem kemur út í dag.

Nýjast