Gagnrýnir Bankasýslu ríkisins harðlega

Hannes Karlsson á aðalfundi KEA/mynd Karl Eskil
Hannes Karlsson á aðalfundi KEA/mynd Karl Eskil

Samvinnufélagið KEA á tæpan helming stofnfjár í Sparisjóði Höfðhverfinga, sem hefur fært út starfsemi sína með opnun útibús á Akureyri. Hannes Karlsson stjórnarformaður KEA sagði á aðalfundi félagsins að rekstur sparisjóðsins hefði gengið vonum framar og horft væri til frekari eflingar sjóðsins.

„Það er afar mikilvægt að stjórnvöld dragi úr opinberri skattlagningu á sparisjóðina svo þeir geti áfram vaxið og dafnað því þeir eru eina verkfærið sem við höfum til að veita stóru bönkunum aðhald og eðlilega samkeppni,“ sagði Hannes. Ekki hefði tekist að koma þessum sjónarmiðum að hjá stjórnvöldum, það ætti vonandi eftir að breytast.

 Erlend fjármögnun kíslivers á Bakka

 „Í lögum um fjármálafyrirtæki segir að þau skuli annaðhvort vera hlutafélög eða sparisjóðir. Það er ekki heimilt að reka fjármálafyrirtæki á Íslandi sem samvinnufélag og enginn hefur sett fram viðhlítandi skýringar á því. Þess má geta að sá banki sem meðal annarra kemur að fjármögnun kísilvers á Bakka við Húsavík er þýskur samvinnu-sparisjóður.“

 Bankasýlan hefur brugðist hlutverki sínu

 „Fjármálaeftirlitið gengur meira að segja það langt að það heimilar ekki að KEA eignist meira en helmings hlut í fjármálafyrirtæki nema því fylgi að kröfur sem gerðar eru til stjórna í fjármálafyrirtækjum flytjist yfir á stjórn KEA. Hlutverk Bankasýslu ríkisins er meðal annars að stuðla að aukinni samkeppni á bankamarkaði. Ég held það sé flestum ljóst að enn sem komið er hefur þessi stofnun brugðist því hlutverki sínu,“ sagði Hannes Karlsson á aðalfundi KEA.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast