Gáfu Akureyrarbæ veggteppi

Helena Dejak afhenti Geir Kristni Aðalsteinssyni forseta bæjarstjórnar á Akureyri veggteppi að gjöf á dögunum fyrir hönd Ferðaskrifstofu Nonna með nýja Akureyrarmerkinu ofið á því. Gjöfin er í tilefni af 150 ára afmæli bæjarins. Ferðamenn frá sautján löndum tóku þátt í vefa veggteppið, en alls gáfu rúmlega hundrað manns þráð í verkefnið. Einnig fékk Geir afhenta bók frá ferðaskrifstofunni með nöfnum frá þeim sem komu að verkefninu. Raghneiður Þórsdóttir, vefari, setti upp vefinn og hefur haft umsjón með verkinu.

throstur@vikudagur.is

 

Nýjast