GA Íslandsmeistari eldri kylfinga

Sigursveit GA.
Sigursveit GA.

Golfklúbbur Akureyrar varð Íslandsmeistari í sveitakeppni eldri kylfinga í karlaflokki en sveitakeppni unglinga og eldri kylfinga fór fram víða um land sl. helgi. Í öðru sæti hafnaði Golfklúbbur Reykjavíkur og Nesklúbburinn varð þriðji. Í kvennaflokki sigraði Golfklúbbur Reykjavíkur í flokki eldri kylfinga en þar hafnaði sveit GA í sjötta sæti. Í flokki drengja 15 ára og yngri fagnaði A-sveit Keilis sigri en A-sveit GA varð í öðru sæti. Af öðrum árangri keppenda GA í sveitakeppninni má nefna að piltarnir í flokki 18 ára og yngri höfnuðu í þriðja sæti í sínum flokki.

Nýjast