Árið 2010 festi SS Byggir ehf kaup á um 30 hektara spildu úr landi Hlíðarenda, lögbýlis ofan Akureyrar og hefur landið hlotið nafnið Hálönd. Svæðið er miðja vegu milli skíðaaðstöðu Akureyringa í Hlíðarfjalli og bæjarins. Á svæðinu er áætlað að verði orlofshús, gistiskálar og hótel. Fyrsti hluti deiliskipulags gerir ráð fyrir 14 orlofshúsum og eru fyrstu húsin tilbúin til notkunar.
Orlofshúsin í Hálöndum eru á einni hæð, 106m² að stærð.
Í húsunum eru þrjú svefnherbergi með gistiaðstöðu fyrir 8 manns og í alrými er eldhúskrókur, borð- og setustofa. Pottrýmið er inni í húsunum með aðgengi út á suðurverönd.
Geymsla með sérinngangi er í húsunum þar sem gestir geta geymt og þurrkað ýmsan viðlegubúnað.
Hægt er að kaupa eða leigja orlofshús í Hálöndum.
Félagið Hálönd ehf sér um rekstur svæðisins og tekur að sér að endurleigja orlofshús í Hálöndum. Þannig geta eigendur húsa valið að leigja út hús sín hluta úr ári og skapað sér með þeim hætti tekjur af fjárfestingunni.