Fyrsti rafmagnsbíllinn til leigu

Steingrímur Birgisson forstjóri Hölds-Bílaleigu Akureyrar og rafmagnsbíllinn.
Steingrímur Birgisson forstjóri Hölds-Bílaleigu Akureyrar og rafmagnsbíllinn.

„Þetta er sprækur og óvenju rúmgóður bíll miðað við hversu lítill hann virkar að utan,” segir Steingrímur Birgissonforstjóri Hölds-Bílaleigu Akureyrar. Rafmagnsbíll af gerðinni Mitzubishi i-Miev kom nýlega á göturnar á vegum fyrirtækisins en þetta er fyrsti rafmagnsbíllinn sem fer til almennrar útleigu hér á landi.

Bíllinn er einungis til innanbæjarleigu fyrst um sinn en drægnin er um 80-100 km á hleðslunni. Framleiðandinn gefur upp drægni allt að 150 km. „Við þorum hins vegar ekki að gefa upp svo langa drægni fyrsta kastið,” segir Steingrímur. Hann segir bílinn í fullu samræmi við umhverfisstefnu Bílaleigu Akureyrar.

„Við viljum stuðla að umhverfisvænni innkaupum bifreiða og að því höfum við unnið undanfarin ár. Tækninni í rafmagnsbílum fleygir fram og rekstrarkostnaður þeirra er umtalsvert lægri en annarra bíla," segir Steingrímur.

throstur@vikudagur.is

Nánar er fjallað um rafmagnsbílinn og rætt við Steingrím í prentútgáfu Vikudags.

 

Nýjast