Fyrsta leikverk LA á næsta leikári: Elskan er ég heima?

Væri lífið auðveldara ef allt væri eins og í gamla daga? Tekist er á við þá spurningu í fyrsta verki…
Væri lífið auðveldara ef allt væri eins og í gamla daga? Tekist er á við þá spurningu í fyrsta verki næsta árs hjá Leikfélagi Akureyrar, Elskan er ég heima?

Fyrsta verk næsta leikárs hjá Leikfélagi Akureyrar er leikverkið Elskan er ég heima? eftir breska leikskáldið Laura Wade, í fyrsta sinn sett upp í íslensku leikhúsi.

„Væri lífið ekki auðveldara ef allt væri eins og í gamla daga? Það finnst Gunnu, sem hefur tekið þá ákvörðun ásamt Jonna eiginmanni sínum að lifa lífsstíl áranna 1950 - 1960. Hún eyðir deginum í að gera hreint á heimilinu svo allt sé í röð og reglu áður en húsbóndinn kemur heim þar sem ferskur kokteill, troðin pípa og hitaðir inniskór bíða hans í vel innréttaðri íbúðinni og hvað á maður að segja við mömmu sína sem barðist fyrir jafnrétti og er ekki par sátt við fyrirkomulagið?

Laura Wade fékk Oliver leiklistarverðlaunin árið 2019 fyrir þetta verk Darling, I´m Home. Þetta er í fyrsta sinn sem verk eftir hana ef sett upp í íslensku leikhúsi. Ilmur Kristjánsdóttir þreytir hér frumraun sína sem leikstjóri og Akureyringurinn Vilhjálmur B. Bragason staðfærir og þýðir verkið.

Leikarar eru Edda Björgvinsdóttir, Hjalti Rúnar Jónsson, Hólmfríður Hafliðadóttir, Ólafur Ásgeirsson, Urður Bergsdóttir, Vigdís Halla Birgisdóttir. Frumsýnt verður 11. október 2025

Nýjast