Kannanir sýna að um fjórðungur fólks ákveður á sjálfan kjördag hvaða flokk það kýs og annar fjórðungur ákveður sig endanlega á síðustu dögum kosningabaráttunnar, segir Grétar Þór Eyþórsson prófessor við Háskólann á Akureyri. Tímabilið sem er núna að renna upp er með öðrum orðum mjög svo spennandi og fylgi flokka getur hæglega sveiflast nokkuð. Fleiri kannanir líta væntanlega dagsins ljós á næstu dögum og það verður fróðlegt að bera þær saman.
Ný framboð eiga eitthvað inni
Rannsóknir sýna að þeir sem kjósa ný framboð, gera upp hug sinn seint. Fylgi gömlu flokkanna er mun tryggara, segir Grétar Þór Eyþórsson.
karleskil@vikudagur.is