Framsóknarflokkurinn heldur áfram að bæta við sig fylgi, samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands, sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Könnunin var gerð í byrjun mánaðarins. Framsóknarflokkurinn fengi 30,9 % , Sjálfstæðisflokkurinn 18,9 %, Samfylkingin 12,6 %, Björt framtíð 10,9 %, Vinstri græn 8,8 %, Píratar 5,6 % , aðrir flokkar minna.
Fylgi Framsónarflokksins á landsbyggðinni mælist 39,5 %, samkvæmt þessari könnun. Fylgi Sjálfstæðisflokksins er 18,9 %, Samfylingarinnar 10,4 %, Bjartrar fframtíðar 8,8 %, Vinstri grænna 8,4 % og fylgi Pítara mælist 4,1 % á landsbyggðinni.
karleskil@vikudagur.is