Frumkvöðullinn þarf að trúa á sína eigin hugmynd

Jón Steindór Árnason/mynd Karl Eskil
Jón Steindór Árnason/mynd Karl Eskil

Fjárfestingarfélagið Tækifæri fjárfestir í nýsköpun eða nýjungum í atvinnulífinu á Norðurlandi. Verkefnin sem félagið fjárfestir í þurfa að hafa hagrænt gildi, vera atvinnuskapandi og leiða til sem mestra margfeldisáhrifa á atvinnulíf svæðisins. Jón Steindór Árnason framkvæmdastjóri Tækifæris er ekki í vafa um gildi nýsköpunar- og frumkvöðlastarfs.

 „Tækifæri hefur komið að stofnun margra fyrirtækja á Norðurlandi á undanförnum árum.

Félaginu hefur verið vel stýrt, öll eggin hafa ekki verið sett í sömu körfuna, áhættunni hefur með öðrum orðum verið dreift á mismunandi staði. Mörg þessara fyrirtækja hafa náð að vaxa og dafna, þannig að ég segi hiklaust að starfsemi Tækifæris hafi verið til góðs fyrir norðlenskt atvinnulíf.“

Eru frumkvöðlar nauðsynlegir?

„Ekki nokkur spurning, frumkvöðlastarfsemi er afar mikilvægur þáttur fyrir nýsköpun. Slík starfsemi er líklega einn helsti drifkraftur hagvaxtar hverrar þjóðar. Til okkar leita árlega nokkuð margir frumkvöðlar, sem eru með hugmyndir að atvinnusköpun. Eftir bankahrunið fækkaði þeim vissulega nokkuð, sömu sögu hafa önnur sambærileg fjárfestingarfélög að segja. En við trúum því að frumkvöðlar muni í auknum mæli vinna að hugmyndum sem Tækifæri getur stutt við.

Hvað einkennir frumkvöðla?

„Þrautseigja er líklega rétta orðið. Frumkvöðullinn þarf að trúa á sína eigin hugmynd og gefast ekki upp þótt á móti blási. Hugmynd frumkvöðulsins þarf í flestum tilvikum að standast mörg próf, áður en hún verður endanlega að veruleika. Oft á tíðum eru hugmyndir talaðar niður og þá er svo mikilvægt að viðkomandi hafi fulla trú á sjálfum sér og sinni hugmynd. Frumkvöðullinn þarf líka að búa yfir ákveðinni víðsýni, sjá sem sagt heildarmyndina. Þetta á til dæmis við um tæknilega aðstoð og fjármögnun.“

Það eru líklega flestir sem hafa  fengið hugmynd að nýsköpun?

 „Já, já, það held ég. Eitt er að fá hugmynd í kollinn, annað mál er svo að ráðast í að útfæra hugmyndina og afla henni fylgis. Okkar hlutverk hjá Tækifæri er einmitt að meta og greina viðskiptaáætlanir sem berast. Það er með öðrum orðum ekki nóg fyrir okkur að fá stutta greinargerð um sjálfa hugmyndina, heldur þarf nokkuð vel ígrunduð viðskiptaáætlun að fylgja.“

Nánar er rætt við Jón Steindór í prentútgáfu Vikudags

Nýjast