Nú um kosningahelgina verður haldið skákmót á Akureyri til að minnast þess að á þessu ári eru 100 ár liðin frá fæðingu Jóns Ingimarssonar skákmeistara og verkalýðsfrömuðar. Mótið er haldið í samvinnu Skákfélags Akureyrar og verkalýðsfélagsins Einingar-Iðju.
Einn af þeim meisturum sem heiðna minningu Jóns með þátttöku sinni er Friðrik Ólafsson, fyrsti stórmeistari Íslendinga, en Friðrik er nú á 79. ári og enn virkur við skákborðið.
Teflt verður í samkomusal á 4. hæð í Alþýðuhúsinu við Skipagötu og verður mótið sett kl. 19.30 á föstudaginn. Öllum er heimil þátttaka meðan húsrúm leyfir. Nánari upplýsingar um mótið er að finna á heimasíðu Skákfélags Akureyrar, skakfelag.blog.is