Hið nýstofnaða félag JCI Norðurland stóð nýverið fyrir leitinni að Framúrskarandi ungum Norðlendingi 2013. Í allt voru 19 framúrskarandi einstaklingar tilnefndir í gegnum heimasíðu JCI en svo var það starf dómnefndar að ákveða hver myndi hljóta titilinn þetta árið. Í dómnefnd sátu Svava Arnardóttir, Sóley Björk Stefánsdóttir og Erlingur Kristjánsson. Veittar voru viðurkenningar fyrir topp þrjú sætin að mati dómnefndar og voru það Valdís Eiríksdóttir, Kristján Guðmundsson og Sigyn Blöndal Kristinsdóttir.
Framúrskarandi ungur Norðlendingur 2013 er Sigyn Blöndal Kristinsdóttir.
Sigyn er fædd 1982. Hún stofnaði Point dansstúdíó á Akureyri og hefur rekið það síðastliðin 8 ár. Hún hefur haft mikil áhrif á líf nemenda sinna og reynst góð fyrirmynd. Sigyn stundar nám í Englandi og stóð nýlega fyrir söfnun svo hún gæti farið í sjálfboðaliðastarf til Úganda í haust. Í þeim tilgangi rakaði hún meðal annars af sér allt hárið fyrir framan áhorfendur á Glerártorgi. Sigyn er frábært dæmi um unga konu sem lætur hendur standa fram úr ermum og nær árangri byggðum á eigin frumkvæði og dugnaði. Hún á stóran þátt í að byggja upp danslíf Akureyrarbæjar og sjálfstraust barna og ungs fólks, segir í tilkynningu frá JCI.