Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi við alþingiskosningar 27. apríl nk. var samþykktur á kjördæmisþingi á Húsavík í dag.
Listann skipa 20 einstaklingar; 11 konur og 9 karlar. Heiðurssæti listans skipar Tómas Ingi Olrich, fyrrum ráðherra og sendiherra.
Framboðslistinn í heild sinni:
1. Kristján Þór Júlíusson, 55 ára, alþingismaður, Akureyri.
2. Valgerður Gunnarsdóttir, 57 ára, skólameistari, Laugum í Þingeyjarsveit
3. Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, 34 ára, verkefnastjóri hjá Austurbrú, Fjarðabyggð
4. Jens Garðar Helgason, 36 ára, framkvæmdastjóri, Fjarðabyggð
5. Erla S. Ragnarsdóttir, 46 ára, framhaldsskólakennari, Hafnarfirði
6. Bergur Þorri Benjamínsson, 34 ára, viðskiptafræðingur, Akureyri
7. Ásdís Jóna Sigurjónsdóttir, 28 ára, stjórnmálafræðingur, Reykjavík
8. Arnbjörg Sveinsdóttir, 57 ára, forseti bæjarstjórnar, Seyðisfirði
9. Njáll Trausti Friðbertsson, 43 ára, flugumferðarstjóri, Akureyri
10. Björgvin Björgvinsson, 33 ára, framkvæmdastjóri, Dalvík
11. Bergþóra Þórhallsdóttir, 49 ára, aðstoðarskólastjóri, Akureyri
12 Soffía Björgvinsdóttir, 48 ára, sauðfjárbóndi í Garði, Þórshöfn
13. Elín Káradóttir, 22 ára, háskólanemi, Fljótsdalshéraði
14. Heimir Örn Árnason, 33 ára, handboltaþjálfari og kennari, Akureyri
15. Ingvar Leví Gunnarsson, 23 ára, háskólanemi, Akureyri
16. María Björk Einarsdóttir, 23 ára, viðskiptafræðingur, Fljótsdalshéraði
17. Páll Baldursson, 38 ára, sveitarstjóri, Breiðdalshreppi
18. Emma Tryggvadóttir, 53 ára, hjúkrunarfræðingur, Vopnafirði
19. Katrín Eymundsdóttir, 71 ára, athafnakona, Kópaskeri
20. Tómas Ingi Olrich, 70 ára, fyrrum ráðherra og sendiherra, Eyjafjarðarsveit