Hópur foreldra grunnskólabarna í Eyjafjarðarsveit afhenti í morgun sveitarstjóranum undirskriftarlista, þar sem skorað er á sveitarstjórn að draga til baka breytingar á skólaakstri til baka hið fyrsta. Alls skrifuðu 258 íbúar sveitarfélagsins yfir 18 ára aldri undir áskorunina.
Mjög hefur verið deilt í sveitarfélaginu um skólaakstur. Sveitarstjórn ákvað að nýta skólabílana jafnframt til almenningssamgangna og við það eru foreldrar mjög ósáttir.