Það er komin upp hálfgerð skelfing í foreldrum, segir Hulda Jóhannsdóttir móðir á Akureyri. Foreldrar barna með ADHD og skylda sjúkdóma eru uggandi vegna þess óvissuástands sem ríkir í barna- og unglinga geðlækningum á Norðurlandi. Enginn starfandi læknir er á því sviði en Páll Tryggvason hætti sem yfirlæknir barna- og geðlæknasviðs á Sjúkrahúsinu á Akureyri fyrir sjö vikum og sótti enginn um hans stöðu.
Páll sinnti börnum á svæðinu frá Djúpavogi og í Hrútafjörð. Hulda á dreng sem þarf á lyfseðilskyldum lyfjum að halda og segir erfitt að nálgast lyfin í dag. Hún segir barnalækna á Sjúkrahúsinu á Akureyri gera sitt besta við endurnýjun á lyfjum en anna ekki eftirspurn. Þá séu margir heimilislæknar hættir að skrifa upp á lyf.
Fólk er að lenda í því að fá hvorki lyf né sálfræðiþjónustu fyrir börnin sín og það eru óhugnalega margir foreldrar í þessari stöðu. Það kom líka aftan að mörgum þegar Páll hætti störfum. Fólk var ekkert látið vita.
Nánar er fjallað um málið í prentútgáfu Vikudags.
throstur@vikudagur.is