Fólk er greinilega skynsamt og velur hollan mat eftir alla salt-og sykurneysluna um hátíðirnar, segir Aðalsteinn Pálsson einn eiganda FISK-Komapaní á Akureyri. Sala á fiski fer vel af stað á nýju ári og ljóst að margir hafa fengið sig fullsadda af kjötáti. Fólk byrjaði að streyma hingað strax 2. janúar og það var eiginlega örtröð. Hamagangur í öskjunni, segir Aðalsteinn. Hann segir mjög breytilegt hvað fólk kaupir sér. Þetta er allt frá ýsu og þorski upp í tilbúna fiskrétti.
Hann segir fisksöluna hafa gengið ágætlega í desember. Fólk var að kaupa fisk alveg fram á síðasta dag fyrir hátíðirnar. Salan breyttist aðeins á milli jóla og nýárs en þá var fólk í hátíðargírnum og fiskur eins og lax, humar og hörpuskel mjög vinsæll. Enda tilvalinn í forrétti.