Fólk sækir í fisk

Gott er að gæða sér á fiski eftir kjötveisluna yfir hátíðirnar. Mynd/Þröstur Ernir.
Gott er að gæða sér á fiski eftir kjötveisluna yfir hátíðirnar. Mynd/Þröstur Ernir.

„Fólk er greinilega skynsamt og velur hollan mat eftir alla salt-og sykurneysluna um hátíðirnar,“ segir Aðalsteinn Pálsson einn eiganda FISK-Komapaní á Akureyri. Sala á fiski fer vel af stað á nýju ári og ljóst að margir hafa fengið sig fullsadda af kjötáti. „Fólk byrjaði að streyma hingað strax 2. janúar og það var eiginlega örtröð. Hamagangur í öskjunni,“ segir Aðalsteinn. Hann segir mjög breytilegt hvað fólk kaupir sér. „Þetta er allt frá ýsu og þorski upp í tilbúna fiskrétti.“

Hann segir fisksöluna hafa gengið ágætlega í desember. „Fólk var að kaupa fisk alveg fram á síðasta dag fyrir hátíðirnar. Salan breyttist aðeins á milli jóla og nýárs en þá var fólk í hátíðargírnum og fiskur eins og lax, humar og hörpuskel mjög vinsæll. Enda tilvalinn í forrétti.“

throstur@vikudagur.is

Nýjast