„Fólk er sjúkt í súrmat“

Viðar segir að pungar og sviðasulta seljist vel/ mynd þröstur ernir
Viðar segir að pungar og sviðasulta seljist vel/ mynd þröstur ernir

„Pungarnir og sviðasultan eru það vinsælasta og einnig kemur hvalurinn mjög sterkur inn. Hákarlinn er alltaf vinsæll en er frekar dýr. Þá hefur nýja sviðasultan selst vel,“ segir Viðar Gunnarsson sem hefur umsjón með kjötborðinu í Samkaup Úrval í Hrísalundi á Akureyri.

 „Fólk er hins vegar að kaupa þorramat í töluverðu magni alla daga. Margir koma hérna við og kaupa t.d punga eða sviðasultu til að borða á leiðinni heim. Fólk er hreinlega sjúkt í súrmat.“

Nánar er talað við Viðar í prentútgáfu Vikudags

Nýjast