Flönum ekki að neinu í einkavæðingu!

Lýðræðisvaktin vill halda opinberum fyrirtækjum sem enn eru í þjóðareigu eins og orkufyrirtækjum áfram í almannaeign. Landsvirkjun – mjólkurkýrin okkar verður ekki seld! Við höfum öll fundið á eigin skinni hvernig fór t.d. með sölu Pósts og síma – öll þjónustugjöld til okkar fólksins í landinu snarhækkuðu og þjónustan á landsbyggðinni er eins og hún er. Þetta er það sem Svíar hafa líka fengið að kenna á og raforkuverðið þar er svívirðilega hátt.

Lýðræðisvaktin vill nýta raforkuna innanlands fyrir okkur sjálf eins og td í ylræktinni. Stefna Lýðræðisvaktarinnar er að við getum séð okkur sjálfum fyrir grænmeti – verðum sjálfbær á þeim heilsusamlega vettvangi.

Til þess að svo megi verða þarf rafmagnið að vera á sama verði til garðyrkjubænda eins og til stóriðjunnar í landinu.

Lýðræðisvaktin vill virkja okkur – fólkið sjálft til ábyrgðar og ákvörðunar um eigin mál!

Markmiðið er að hér geti þrifist markaðsvænn landbúnaður sem fullnægi innanlandsmarkaði.

Við getum verið stolt af íslenskum bændum og sumir hverjir hafa tekið upp einfaldara sölukerfi með fækkun milliliða beint frá býli.

Við getum líka verið stolt af skógræktinni og landgræðslunni.

Áframhaldandi útvíkkun svæða þar sem girt er fyrir lausagangu búfjár er þó mikilvæg jafnvægisaðgerð.

Lýðræðisvaktin er hlynnt einkavæðingu, en eingöngu á virkum samkeppnismarkaði.

Á þeim sviðum þar sem um raunverulega virka samkeppni getur verið að ræða er ekki nema sjálfsagt og eðlilegt að einkavæða.

Stefnuskrá Lýðræðisvaktarinnar helgast af upphafsorðum nýju stjórnarskrárinnar:

„Við sem byggjum Ísland viljum skapa réttlátt samfélag þar sem allir sitja við sama borð.“

Yst Ingunn St. Svavarsdóttir

Höfundur er sálfræðingur og listakona

og skipar 6. sæti framboðslista

Lýðræðisvaktarinnar í

Norðausturkjördæmi.

Nýjast