Flokkarnir sem tapa fylgi munu brýna sverðin

Grétar Þór Eyþórsson/mynd þröstur ernir
Grétar Þór Eyþórsson/mynd þröstur ernir

Framsóknarflokkurinn fengi fimm þingmenn í Norðausturkjördæmi í alþingiskosningunum, samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands, sem gerð var fyrir Morgunblaðið. Könnunin var gerð dagana 2. til 8. apríl.

Samkvæmt könnuninni er Framsóknarflokkurinn með 40,1% fylgi, Sjálfstæðisflokkurinn 13,8%, Samfylkingin 11,4%, Björt framtíð 11,2%, Vinstri græn 10% og fylgi Dögunar mælist 5,6%.

Verði þetta niðurstaða kosninganna fengi Framsóknarflokkurinn eins og fyrr segir fimm þingmenn í kjördæminu.

Sjálfstæðisflokkurinn fengi tvo þingmenn, Samfylking, Björt framtíð og Vinstri græn einn þingmann hver flokkur.

„Norðausturkjördæmi er sterkasta vígi Framsóknarflokksins og flokkurinn er greinilega að fá sama byr í seglin í kjördæminu eins og annars staðar á landinu. Þetta mikla fylgi er þó hið mesta eftir að breyting var gerð á kjördæmum

landsins,“ sagði Grétar Þór Eyþórsson prófessor við Háskólann á Akureyri í morgun. „Tillögur flokksins að skuldavanda heimilanna eru líklega helsta ástæðan fyrir þessu mikla fylgi.“

Örvænting

„Þeir flokkar sem eru að tapa miklu fylgi hljóta að brýna sverðin, sérstaklega Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin.

Þar fer að ríkja örvænting að óbreyttu. Vinstri græn eru líka að tapa miklu fylgi, en taka verður fram flokurinn jók mikið við sig fylgi í síðustu kosningum. Það getur ýmislegt gerst á næstu dögum í kosningabaráttunni, enda rúmar tvær vikur til kosninga.

Flokkarnir taka þessar kannanir örugglega alvarlega og leita allra ráða til að koma sínum stefnumálum til háttvirtra kjósenda.“

karleskil@vikudagur.is

Nýjast