Flóðbylgja í Ketilhúsinu

Jónborg Sigurðardóttir, Jonna, opnar í dag kl. 15:00 innsetninguna Flóðbylgja í Ketilhúsinu á Akureyri. Þar túlkar hún tilfinningar sínar til flóðbylgju ofneyslunnar sem brýst inn á heimilin og hrifsar allt til sín með dyggri aðstoð neytenda. Vitundarvakning er nú loksins að eiga sér stað þegar afleiðing ofgnóttar og sóunar blasir við; tískublætið, græjusýkin, peningabraskið, allur óþarfa lúxusinn og taumlausa hlutadýrkunin – allt bullið og vitleysan.

Jonna er fædd árið 1966 og útskrifaðist úr málunardeild Myndlistaskólans á Akureyri vorið 1995. Hún lærði fatahönnun í Mode- og Designskole í Kaupmannahöfn og útskrifaðist þaðan 2011. Jonna hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og haldið nokkrar einkasýningar.

Sýningin stendur til 6. apríl og er opin alla daga nema mánudaga kl. 12-17. Aðgangur er ókeypis.

Nýjast