Flest fyrirtæki í málmiðnaði vantar fólk til starfa

Jóhann Sigurðsson/mynd Karl Eskil
Jóhann Sigurðsson/mynd Karl Eskil

„Hjá þeim fyrirtækjum sem ég hef rætt við á undanförnu dögum er verkefnastaðan almennt mjög góð. Reyndar er staðan þannig að það hreinlega vantar fólk til starfa í öllum greinum málmiðnaðar. Fyrirtækjunum gengur erfiðlega að fá vant starfsfólk, þrátt fyrir ítarlega leit,“ segir Jóhann Sigurðsson formaður Félags málmiðnaðarmanna Akureyri. Starfssvæði félagsins er Eyjafjarðarsvæðið.

 

Mikil yfirvinna

 „Já, það sýnist mér á öllu, það er unnin veruleg yfirvinna á flestum stöðum. Staðan í haust og vetur er líka góð, enda eru stór verkefni á teikniborðinu. Ég fæ því ekki betur séð en að einhver skortur verði á málmiðnaðarmönnum í nánustu framtíð og þess vegna er svo mikilvægt að standa vel að menntamálum,“ segir Jóhann.

 

Nánar um þetta mál í prentútgáfu Vikudags

 

karleskil@vikudagur.is

Nýjast