Fleiri stútar undir stýri

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.

Rúmlega tuttugu ökumenn hafa verið teknir fyrir ölvun við akstur á Akureyri það sem af er ári en voru sextán á sama tíma í fyrra. Akstur undir áhrifum fíkniefna fer hins vegar minnkandi á milli ára fyrstu þrjá mánuði ársins; fimmtán ökumenn hafa verið teknir í ár samanborið við tuttugu á sama tíma í fyrra. Þá er einnig að færast í aukana að ökumenn séu teknir fyrrihluta dagsins við ölvun.

throstur@vikudagur.is

Nýjast