Fjör í Hlíðarfjalli í dag

mynd/Ragnar Hólm
mynd/Ragnar Hólm

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli verður opið í dag frá klukkan 09:00 til 16:00 og má búast við fjölmenni,þar sem veðrið gefur gott tilefni til útiveru.

Frambjóðendur til alþingiskosninga  etja kappi í svigbraut klukkan 14:00 og á sama tíma hefst páskatrimm SKA og Flugfélags Íslands. Páskatrimmið er fyrir alla aldurshópa.

Veðurspáin fyrir Norðurland eystra segir að í dag verði  suðaustlæg átt og skýjað með köflum, frost 1 til 11 stig, en víða frostlaust í dag.

Sundlaug Akureyrar er opin í dag frá klukkan 09 til 19:30

karleskil@vikudagur.is

Nýjast