Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli verður opið í dag frá klukkan 09:00 til 16:00 og má búast við fjölmenni,þar sem veðrið gefur gott tilefni til útiveru.
Frambjóðendur til alþingiskosninga etja kappi í svigbraut klukkan 14:00 og á sama tíma hefst páskatrimm SKA og Flugfélags Íslands. Páskatrimmið er fyrir alla aldurshópa.
Veðurspáin fyrir Norðurland eystra segir að í dag verði suðaustlæg átt og skýjað með köflum, frost 1 til 11 stig, en víða frostlaust í dag.
Sundlaug Akureyrar er opin í dag frá klukkan 09 til 19:30
karleskil@vikudagur.is