"Það þarf að gera ungu fólki grein fyrir að hjónabandi eða parasambandi fylgir ábyrgð og að slíkt samband er undirstaða að heimili sem aftur er einn af hornsteinum samfélagsins. Það þarf að gera unga fólkinu grein fyrir hættunum sem ógna hjónabandinu. Það er algerlega nauðsynlegt fyrir einstaklinga sem stofna til hjónabands eða hefja sambúð að þekkja hætturnar og hafa hugmynd um hvernig hægt er að bregðast við þeim. Að vera heiðarlegur og heilsteyptur í hjónabandi og góður uppalandi er ekki meðfætt. Áður fyrr var þetta ekki svo mikið áhyggjuefni því unga fólkið lærði í smiðju stórfjölskyldu þeirra tíma þar sem gjarnan bjuggu saman þrjár kynslóðir. Í dag er samfélags- og fjölskyldumynstrið gjörbreytt án þess að úrræði og skyldur fjölskyldunnar í breytilegum heimi hafi verið endurskilgreind á síðustu 20 árum, velferð fjölskyldunnar til framdráttar." Þetta skrifar Böðvar Jónsson lyfjafræðingur í grein í Vikudegi.