Fjölskyldan og framtíðin

Böðvar Jónsson
Böðvar Jónsson

Árið 1994 var á sínum tíma útnefnt alþjóðlegt ár fjölskyldunnar. Þegar litið er til þeirra einkunnarorða sem árinu voru valin  „Fjölskyldan, úrræði og skyldur í breytilegum heimi“  þá virðist nokkuð ljóst að áhyggjur hafi  verið uppi vegna stöðu og framtíðar fjölskyldunnar. Á þeim tíma skildi maður það svo að tilgangurinn væri að hugað yrði að stöðu og styrkingu fjölskyldunnar og hún galvaniseruð til þess að þola og standast áhrif ýmiskonar þjóðfélagsmeina sem framtíðin gæti borið í skauti sér og ógnað gætu fjölskylduböndum og þar með velferð meðlima fjölskyldunnar,  í  mörgum tilfellum sérstaklega þó velferð barnanna.

Spurningin í dag er því þessi,  getum við, sem samfélag,  sagt að við höfum á síðustu tuttugu árum gengið til góðs í málefnum fjölskyldunnar?  Þegar reynt er að svara þessari spurningu blasir fyrst við hin háa skilnaðartíðni sem bendir til þess að fjölskyldan eigi undir högg að sækja.  Meðal skilnaðatíðni síðust 11 ára er samkv. tölum Hagstofunnar 545 skilnaðir fyrir hverjar 1000 hjónavígslur.    Ástæður þessarar háu tíðni geta verið ýmsar eins og að stofnað sé til hjónabands á röngum forsendum. Einnig má benda á skrif dr. Sigrúnar Júlíusdóttur prófessors við HÍ um fjölskyldurannsóknir sem sýna að fæðing fyrsta barns geti verið ávísun á skilnað. Niðurstöður nýlegra rannsókna sem hún nefnir benda til að að 60 – 90% foreldra upplifi minni ánægju í sambandinu fyrstu þrjú árin eftir fæðingu barns.

Hver er staða fjölskyldunnar á Íslandi í dag

Fyrir okkur öllum  er sú staðreynd augljós að sérhvert barn á sér foreldra sem bera ábyrgð á nýkviknuðu lífi.  Sérhvert barn verður undir venjulegum kringumstæðum hluti af fjölskyldu og það virðist eðlilegur og  náttúrulegur réttur hvers barns að alast upp í faðmi elskandi foreldra og líða vel. Eða eins og vitur kona sagði einhverju sinni:  „Aðeins það samfélag getur kallast gott samfélag þar sem börnum líður vel“.  Ég kannast ekki við að reynt hafi verið að meta almenna vellíðan barna á Íslandi. Í Bretlandi sem er vestrænt samfélag sambærilegt við okkar hefur dr. Tessa Livingstone, barnasálfræðingur og höfundur verkefnisins  „Child of Our Time“ skoðað einmitt þetta  og komist að þeirri niðurstöðu að skefjalaus efnishyggja og mikil vinna foreldra utan heimilis standi velferð barna í Bretlandi fyrir þrifum.  Það kæmi ekki á óvart að hægt væri að yfirfæra þessa niðurstöðu yfir á íslenskt samfélag. 

 Samkvæmt tölum Hagstofunnar  alast 21,6% íslenskra barna  upp hjá einstæðum mæðrum, þjóðfélagshópi sem býr við knöppustu kjörin í þjóðfélaginu. Nær helmingur barna sem eru til skoðunar hjá barnaverndar nefndum landsins eru einmitt börn sem alast upp við þessar aðstæður og  38% umsókna á meðferðarheimili eru fyrir börn einstæðra mæðra. Þessar tölur er að finna í viðtali við Pál Ólafsson og Oktavíu Guðmundsdóttur í Fréttablaðinu 28.  jan. 2014.  Í þessu sambandi má einnig benda á að ásókn í þjónustu Barna og unglingageðdeildar er í þeim mæli sem stofnunin ræður ekki við og biðlistar myndast.  Óöryggi sem skapast í kjölfar deilna og ofbeldis  í kjölfar erfiðra skilnaða hlýtur að kalla fram kvíða og og aðra sálræna og andlega kvilla. Það þarf ekki vitnanna við að slík líðan dregur úr þrótti, lífsgleði og í versta falli lífslöngun. Spurningin er hvort uppspretta áfengis og vímuefnaneyslu ungmenna liggi ekki að einhverju leyti í þeim aðstæðum sem hér hefur verið lýst og hluti af lausn þeirra mála liggi í styrkingu fjölskyldunnar.

Að mínu mati er hálfvelgjan gagnvart hjónabandinu og virðingarleysið við þær skuldbingingar sem hjónabandið felur í sér er alvarleg ógnun við samfélagið og framtíð þess. Ef haldið verður áfram eins og verið hefur þýðir það að óbornar kynslóðir munu ekki gera sér grein fyrir gildi varanlegra fjölskyldubanda fyrir heilbrigt fjölskyldu- og samfélagslíf.  Andúð á hverskonar ábyrgð og óttinn við að takast á hendur raunverulegar skuldbindingar gagnvart öðrum eykst í takt við innihaldslausa lífsnautnastefnu.

Hvað er til ráða?

Því  má svara með einu orði FRÆÐSLA.  Á síðasta ári  vann hópur unglinga í Giljaskóla verkefni um kynlíf unglinga.  Niðurstaða þeirra var að unglingar á Íslandi hæfu of snemma að stunda kynlíf.  Þetta kemur heim og saman við rannsóknir sem sýna að unglingar á Íslandi byrji að lifa kynlífi umtalsvert fyrr en unglingar annarsstaðar í heiminum.  Þetta sýna niðurstöður Sóleyjar Bender frá 1994 og rannsókn Höllu Ólafar Jónsdóttur frá 2012. Rannsóknin frá 1994 sýndi að börn hófu að lifa kynlífi allt niður í 15 ára og 4 mánaða. Rannsóknin frá 2012 sýnir að aldursmarkið hefur færst umtalsvert neðar eða niður í 13 ár og 9 mánuði (Kynhegðun unglinga á Íslandi, 2012, Halla Ólöf Jónsdóttir bls. 26) Eitt af því sem sumir skólar hafa beitt til að hafa áhrif á þessa þróun er notkun ungbarnaherma sem miða að fræðslu sem dragi úr hættunni á því að nemendur byrji að lifa kynlífi á unglings- eða jafnvel barnsaldri og þannig megi draga  úr algerlega ótímabærum þungunum, en þunganir stúlkna á unglingsaldri eru sannarlega grafalvarlegt mál fyrir framtíð þeirra.

Það þarf að fræða ungt fólk um hjónabandið og undirbúninginn undir það þannig að um sé að ræða raunverulegt val  á lífsförunaut  en ekki að einstaklingurinn detti  inn í hjónaband eða parasamband sem byggir á tilviljun eða skyndikynnum í stað meðvitaðs vals á einstaklingi með vandaðan persónuleika og heilbrigða lífssýn.  Í indverskri speki segir að meðan leitað sé að lífsförunaut skuli maður hafa augun gal opin en loka þeim til hálfs þegar ákvörðun hefur verið tekin.  Því miður virðist manni  þessu vera öfugt farið í hinum íslenska veruleika.

Það þarf að gera ungu fólki grein fyrir að hjónabandi eða parasambandi fylgir ábyrgð og að slíkt samband er undirstaða að heimili sem aftur er einn af hornsteinum samfélagsins. Það þarf að gera unga fólkinu grein fyrir hættunum sem ógna hjónabandinu.  Það er algerlega nauðsynlegt fyrir einstaklinga sem stofna til hjónabands eða hefja sambúð að þekkja hætturnar og hafa hugmynd um hvernig hægt er að bregðast við þeim.  Að vera heiðarlegur og heilsteyptur í hjónabandi og góður uppalandi er ekki meðfætt. Áður fyrr var þetta ekki svo mikið áhyggjuefni því unga fólkið lærði í smiðju stórfjölskyldu  þeirra tíma þar sem gjarnan bjuggu saman þrjár kynslóðir. Í dag er samfélags- og fjölskyldumynstrið gjörbreytt án þess a𠠄úrræði og skyldur fjölskyldunnar í breytilegum heimi“  hafi verið endurskilgreind á síðustu 20 árum, velferð fjölskyldunnar til framdráttar.


Böðvar Jónsson, lyfjafræðingur

 

Nýjast