Sveinn Arnarsson, meistaranemi í rannsóknartengdum félagsvísindum við Háskólann á Akureyri, mun flytja erindið Fjölmiðlar og landsbyggð: Umfjöllun um samgöngur í íslensku þjóðfélagi á félagsvísindatorgi HA í dag. Á Íslandi búa tveir af hverjum þremur á SV-horni landsins og umræða um fólksflótta af landsbyggðinni hefur verið landlæg um nokkurt skeið. Í erindi sínu mun Sveinn skoða hvernig fjölmiðlar taka á stöðu landsbyggðarinnar og reyna að gera grein fyrir einkennum íslenskrar þjóðmálaumræðu um landsbyggðir Íslands. Erindið verður flutt í stofu M-102 í aðalbyggingu skólans, Sólborg, kl. 12:00.
Sveinn hefur frá árinu 2009 unnið við rannsóknarverkefnið Samgöngubætur og byggðaþróun: Félagsleg, efnahagsleg og menningarleg áhrif Héðinsfjarðarganga á mannlíf á norðanverðum Tröllaskaga. Í þeirri rannsókn hefur hann aðallega stundað rannsóknir á ferðavenjum íbúa og væntanlegar breytingar á umferðarstraumum eftir opnun Héðinsfjarðarganga.