IÐAN fræðslusetur stendur fyrir sérstakri viku símenntunar í iðnaði á Akureyri, 28. janúar til 2. febrúar n.k.
Verkefnið er samstarf Símeyjar, Verkmenntaskólans á Akureyri og IÐUNNAR fræðsluseturs en þessi fyrirtæki sinna símenntun og grunnmenntun í atvinnulífi og iðnaði.
IÐAN fræðslusetur mun bjóða upp á 20 námskeið sem spanna flestar greinar iðnaðar á Íslandi. Sem dæmi má nefna námskeið í AutoCad hönnunarhugbúnaði, prófanir í málmiðnaði, námskeið fyrir kjötiðnaðarmenn við mat á kjöti, InDesign fyrir grafíska hönnuði, námskeið fyrir fagfólk í hársnyrtigreinum í litun og klippingu, vínfræði fyrir þjóna, bilanagreining fyrir bifvélavirkja, námskeið fyrir myndskreyta og grafíska hönnuði, námskeið í tölvuleikjagerð, brunaþéttinganámskeið fyrir byggingamenn, varmadælur fyrir byggingamenn og námskeið fyrir starfsfólk í bakaríum.
Þar að auki verður boðið upp á kynningar á iðnnámi, kynningu á raunfærnimati og námskeiði fyrir meistara og stjórnendur sem vilja taka nema á vinnustaðanámssamning.
Það verður því heilmargt um að vera.