Fiskur og bananar í karamellusósu

Guðmundur Pétursson tók áskorun frá mágkonu sinni og kemur með girnilegar uppskriftir í matarkrók vikunnar, þar sem fiskur og bananar koma við sögu.

Fiskur í eldföstu móti 

1dl af hrísgrjónum sjóða í 15 mín

1 laukur                       

½ blaðlaukur               

1 paprika                     

5 meðalstórir sveppir   

Slatta og slurk af blómkáli og brokkáli

3-4 msk olía

3-4 dl kaffirjómi eða annar rjómi

2 msk soyjasósa

1 dl  Ostrusósa

800 gr fiskur/þorskur

Aðferð:

Grænmetið skorið niður og sett á pönnu í 10-15 mín á meðalhita. Rjóminn, soya sósan og ostrasósan hrærð saman við og hitað í 2-3 mínútur til viðbótar. Soðin hrísgrjón sett í eldfast mót. Hrár fiskur settur ofan á hrísgrjónin. Kryddað með salti og svörtum pipar. Síðan er grænmetinu af pönnunni helt ofan á fiskinn í eldfasta mótinu og mótið sett í 190° heitan ofn í 20-25 mín. Tekið út og settur ostur yfir og sett inn í ofninn í 5 mín til viðbótar eða þar til osturinn bráðnar. Borið fram með hvítlauksbrauði

 Eftirréttur:

Heitir bananar með karamellusósu

6 bananar, afhýddir og skornir
í tvennt eftir endilöngu.
1 bolli púðursykur
6 msk smjör
1 msk soðið vatn
vanilluís
1/2 bolli hunangsristaðar hnetur eða ristaðar möndluflögur.

Hitið ofninn í 180°C. Setjið bananana í eldfast mót með skornu hliðina upp. Blandið púðursykri og smjöri saman í pott og hitið á vægum hita þangað til blandan er bráðin. Hækkið hitann, blandið soðna vatninu út í og sjóðið í 3 mínútur. Hellið sósunni yfir bananahelmingana. Bakið bananana í 15 mínútur eða þar til karamellan sýður. Berið bananana fram strax með ískúlu og hnetum stráð yfir. Verði ykkur að góðu

„Ég skora á Elvar Guðmundsson, sem er vanur að grafa upp hin ýmsu krydd í matargerð sinni og nýtur sín vel í eldhúsinu að koma með mataruppskriftir í næstu viku.”

 

Nýjast