Fiskisúpa og grafinn lambavöðvi

Jón Skúli með afastrákinn, Baldur Tristan.
Jón Skúli með afastrákinn, Baldur Tristan.

Jón Skúli Sigurgeirsson sjómaður sér um matarkrók vikunnar. „Ég ætla að bjóða upp á matarmikla fiskisúpu sem ég eldaði um páskana. Svo gef ég uppskrift af gröfnu lambi sem upplagt er í forrétt og gómsæta ostaköku í eftirrétt.“

 

Fiskisúpa

1 stk. laukur, saxaður

1 stk. hvítlauksrif

olía

3 tsk. karrý

2 dósir niðursoðnir saxaðir tómatar

3 dl vatn

1 stk. grænmetisteningur

1 heildós ferskjur, skornar í teninga,

ásamt safanum

500 g fiskur – humar/rækjur/skelfiskur

eða annar fiskur

2,5 dl rjómi

salt og pipar

 

Laukur, hvítlaukur og karrý er látið malla í olíunni á pönnu smá stund. Tómötum, ferskjum, safa, vatni, rjóma og krafti bætt saman við og látið krauma í 20 mín. Fiski bætt við og soðið í stuttan tíma, athugið að ef humar eða rækja er notuð má suðan aðeins koma upp og síðan tekið af hellunni. Borið fram með góðu brauði eða snittubrauði.

 

Grafinn lambavöðvi

með piparrótarsósu

 

Lambafilet eða innralæri, fitulaust

gróft salt

svartur pipar

grænn pipar

rósapipar

sinnepsfræ

villijurtir frá Pottagöldrum

 

Takið vöðvann og hyljið með grófu salti í 3 klst. Skolið síðan með köldu vatni og þurrkið vel. Piparnum

Blandað saman í kvörn og hann mulinn yfir kjötið. Nokkrum sinnepsfræjum sáldrað yfir, hyljið síðan vel með villijurtum frá Pottagöldrum og setjið í álpappír. Geymið í ísskáp í 3 daga og snúið daglega.

 

Piparrótarsósa

1 dós sýrður rjómi

4 msk. majones,

1 pakki (50 g) piparrótarmauk

safi úr 1/4 sítrónu

1 msk. hunang

1/2 tsk. salt

 

Öllu hrært saman.

 

Ostakaka

1 pk. Homeblest kex með súkkulaði

hálf dós smjörvi, bræddur

Blandað saman og látið storkna í

tveimur stórum formum.

200 rjómaostur

200 appelsínurjómaostur

200 g flórsykur

1 egg

safi úr einni appelsínu

5 dl þeyttur rjómi

Öllu blandað saman, síðast rjómanum

og hellt yfir botninn.

Krem

1 dós sýrður rjómi

100 g Sírius konsum

 

Brætt saman yfir vatnsbaði og sett yfir kökuna. Þetta má síðan frysta ef

vill. „Ég skora á Aðalbjörgu Þórólfsdóttur að koma með uppskrift í næsta blaði.“

Nýjast