Fiskistofa flutt norður

Fiskistofa verður flutt norður til Akureyrar en þetta tilkynnti Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, á ársfundi Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar í dag. Rúmlega 70 manns starfa hjá Fiskistofu. Sigmundur sagði ljóst að þetta væri mikil lyftistöng fyrir atvinnulífið í Eyjafirði. Hann sagði jafnframt að í skoðun væri að flytja fleiri stofnanir norður. Áætlað er að klára flutning Fiskistofa til Akureyrar fyrir lok næsta árs.

Á vef Fiskistofu kemur fram að stofnunin annast stjórnsýsluverkefni á sviði sjávarútvegsmála, lax- og silungsveiði, fiskræktar, fiskeldis, hvalveiða o.fl. Hlutverk Fiskistofu er jafnframt að safna upplýsingum um framangreinda málaflokka. Höfuðstöðvar Fiskistofu hafa verið í Hafnarfirði frá árinu 2005. Starfsstöðvar eru víða um land; í Vestmannaeyjum, á Stykkishólmi, á Ísafirði og Höfn í Hornarfiði. Einnig hefur starfsstöð verið rekin á Akureyri. Áður en höfuðstöðvarnar voru fluttar í Hafnarfjörð var stofnunin til húsa í Höfn við Ingólfsstræti frá árinu 1992. Árni Mathiessen var sjávarútvegsráðherra þegar Fiskistofa var flutt í Hafnarfjörð.

throstur@vikudagur.is

Nýjast