Fjölskylduhátíðin Fiskidagurinn mikli verður haldin í tólfta sinn á laugardaginn kemur í Dalvík, þann 11. ágúst. Dagskráin er glæsileg að vanda og verður Fiskisúpukvöldið vinsæla á föstudagskvöldinu. Þetta er í áttunda sinn sem Fiskisúpukvöldið er haldið og samtals hafa ríflega 140.000 gestir ritað nöfn sín í gestabækur á súpukvöldi.
Á laugardeginum, sjálfum Fiskideginum mikla, verður að vanda boðið upp á fisk af allskyns tagi. Það eru margir réttir á matseðlinum og mikið um nýjungar í ár, m.a stökkar fiskistangir og fylltar ýsurúllur frá Grími kokki úr Eyjum. Bjarni í Nings, fjölskylda og vinir munu fylla stærsta súpupott landsins, 1.200 lítra af gómsætri fiskisúpu með austurlenskum blæ. Hinn frækni 66 árgangur mun grilla þúsundir fiskborgara á stærsta langrilli landsins sem er átta metra langt með 20 brennurum, er segir í fréttatilkynningu. Þetta er aðeins brot af því sem í boði verður.
Skemmtidagskráin er mjög fjölbreytt að vanda. Dagskrá verður á hátíðarsviðinu allan daginn og til viðbótar fjöldi fjölskylduvænna atriða vítt og breitt um hátíðarsvæðið. Í ár verður lagt áherslu á fjölskylduhátíðina og að fjölskyldan komi saman og skemmti sér. Alla dagskrána og upplýsingar um matseðil má sjá á www.fiskidagur.muna.is.