Líkt og margir vita var nýverið samþykkt bygging nýrrar rennibrautar við Sundlaug Akureyrar. Áætlaður kostnaður á rennibrautinni er u.þ.b. 100 milljónir.
Núverandi rennibraut er víst orðin of gömul, erfið í viðhaldi og jafnvel hættuleg. Margir hafa mótmælt þessu og telja peningana betur nýtta til uppbyggingar í sundlauginni eða annars viðhalds í bænum.
Eins og fram kom í viðtali RÚV við Ragnheiði Runólfsdóttur, sundkennara og þjálfara, í desember síðastliðnum er margt sem mætti bæta í sambandi við sundlaugina sem ætti að vera framar á forgangslista en ný rennibraut. Hún benti á að bæta mætti aðstöðu sundkennara og nemenda á margan hátt.
Til dæmis getur verið erfitt að kenna sund úti yfir veturinn þar sem íslenskt veður er afskaplega óáreiðanlegt og ekkert annað en útisundlaugar í boði. Þar að auki er ásigkomulag barnasundlaugar í kjallara aðalbyggingar sundlaugarinnar ábótavant. Sundlaugarbakkinn við útilaugarnar verður afar háll í bleytu og hættulegt getur verið fyrir kennara að þramma fram og til baka á honum liðlangan daginn.
Einnig má benda á að aðstaða kennara til annarar vinnu, s.s. bókhalds og pappírsvinnu er ekki nógu góð. Ragnheiður benti líka á að aðstaða fatl aðra og eldri borgara við sundlaugarnar er alls ekki til fyrirmyndar.
Akureyrarbær hefur þar að auki ákveðið að hætta að hita upp kirkjutröppurnar vegna sparnaðar en það kostar 5 milljónir á ári að hita upp annan helminginn. Það gerir það að verkum að mikil hálka getur myndast og slys átt sér stað.
Þá þarf einnig að handmoka tröppurnar allar en það er mjög tímafrekt og erfið vinna. Þannig að á meðan börn Akureyrar fá að renna sér í lengstu rennnibraut landsins um há vetur gæti hver sem labbar niður kirkjutröppurnar, runnið og slasast alvarlega.
Okkur finnst undarlegt að íþróttanefnd Akureyrarbæjar hafi samþykkt 100 milljóna rennibraut í stað þess að bæta aðstöðu til sundkennslu þar sem að eðlilegt er að íþróttakennsla sé þeim ofar í huga en rándýr rennibraut.
Við erum þó ekki fullkomlega mótfallnar nýrri rennibraut en hún þarf hvorki að vera sú stærsta á Íslandi né að kosta morðfjár.
Hafdís Björk, Agnes Birta, Þórunn Sigríður ogLóa Aðalheiður, nemendur við Menntaskólann á Akureyri.