Fimm ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur á Akureyri í nótt og var einn sviptur á staðnum. Sá ók á 107 km hraða innanbæjar þar sem hámarkshraði er 50 km. Margir eru samankomnir í bænum í tengslum við Bíladagshátíðina en lögreglan segir helgina hafa gengið stóráfallalaust fyrir sig. Mikill erill var í miðbænum í nótt og eitthvað um pústra. Þá hefur talsvert verið um að fólk hafi hringt og kvartað vegna hávaða. Þrír gista nú fangageymslur þar sem þeir sofa úr sér vímuna eftir skemmtanalífið í nótt.
Um miðjan dag í gær varð vélhjólaslys í Glerárgötu þar sem betur fór en á horfði í fyrstu þegar ökumaður missti stjórn á mótorhjóli sínu og féll í götuna. Loka þurfti Glerárgötunni um tíma vegna slyssins en ökumaðurinn reyndist ekki alvarlega slasaður.
throstur@vikudagur.is