Filmu úr eftirlitsmyndavél lögreglunnar stolið

Bíllinn með eftirlitsmyndavéllinni var ómerktur
Bíllinn með eftirlitsmyndavéllinni var ómerktur

„Bíllinn stóð við bæinn Skóga í Hörgársveit á laugardaginn og einhver braust inn í hann og fjarlægði filmuna úr eftirlitsmyndavélinni. Þetta uppgvötvaðist ekki fyrr en seint um kvöldið, þegar lögreglan vitjaði bílsins,“  segir Gunnar Jóhannsson rannsóknarlögreglumaður á Akureyri.

Hann segir ekki ólíklegt að innbrotsþjófurinn hafi verið myndaður vegna hraðaksturs og ákveðið að snúa við og fjarlægja filmuna.

„Ég held að það hljóti að vera, viðkomandi hefur líklega talið sig eiga eitthvað sökótt við myndavélina. Rúða í bílnum var brotin og filman tekin úr vélinni, þannig að fjárhagslegt tjón er ekki verulegt,“ segir Gunnar.

Ekki er ólíklegt að búið hafi verið að mynda nokkra vegna of hraðs aksturs um daginn og sleppa viðkomandi þess vegna við sektir, þar sem filman var fjarlægð.

Ef einhver getur veitt upplýsingar um málið, er viðkomandi beðinn um að hafa samband við lögregluna.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast