Fíkniefnaakstur áberandi á Akureyri

Tveir ungir ökumenn voru stöðvaðir á Akureyri í gær vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Í báðum tilfellum voru ökumennirnir fluttir á lögreglustöð í yfirheyrslur og sýnitöku. Fyrra atvikið átti sér stað seinni partinn í gær en það síðara um miðnætti, bæði innan bæjarmarka. Að sögn lögreglunnar á Akureyri fer akstur undir áhrifum fíkniefna sífellt fjölgandi í bænum, „þetta er orðið svo algengt að þetta telst varla til tíðinda lengur,” sagði varðstjóri hjá lögreglunni í samtali við Vikudag.

Á síðasta ári voru 90 ökumenn kærðir fyrir fíkniefnaakstur á Akureyri og hafa þeir aldrei verið fleiri.

throstur@vikudagur.is

Nýjast