Skrifað hefur verið undir samninga um sameiningu á Ferro Zink og Metal með fyrirvara um samþykki hluthafafunda og Samkeppniseftirlitsins. Með sameiningu þessara tveggja rótgrónu fyrirtækja verður til eitt öflugasta þjónustufyrirtæki á sviði iðnaðar á landinu með yfir 70 starfsmenn og starfsstöðvar á Akureyri og á höfuðborgarsvæðinu en ársvelta þessara félaga var samtals tæpir 5 milljarðar í fyrra.
Ferro Zink eða Sandblástur og Málmhúðun, eins og það hét áður, var stofnað árið 1960. Félagið hefur um árabil verið með framleiðslu og zinkhúðun auk þess sem innflutningur á stáli og verslunarvöru hefur verið mikilvægur þáttur í starfsseminni. Ferro Zink er til húsa í Álfhellu 12-14 í Hafnarfirði og Árstíg 6 á Akureyri.
„Við sjáum mikinn hag í þessari sameiningu sem gerir okkur kleift að þjónusta viðskiptavini þessara fyrirtækja á enn markvissari hátt því þessi fyrirtæki falla vel að hvort öðru. Metal er öflugt í ryðfríu stáli en Ferro Zink í svörtu stáli. Við hlökkum til að nýta þau tækifæri sem framundan eru í samþættingu og um leið frekari vexti sameinaðs félags“ segir Jón Steindór Árnason, stjórnarformaður Ferro Zink.
Metal ehf var stofnað árið 2004 og hefur fyrirtækið verið leiðandi í innflutningi og sölu á ryðfríu stáli, áli, plasti og tengdum vörum. Metal er til húsa í Suðurhrauni 12b í Garðabæ.
„Metal hefur í yfir 20 ár leitast við að veita viðskiptavinum sínum topp þjónustu þegar kemur að verðum, gæðum og viðbragðstíma. Áherslan í gegnum árin hefur verið á ryðfrítt stál en vöruframboðið aukist með árunum. Eigendur félagsins sjá samruna við Ferro Zink sem spennandi kost fram á veginn þar sem áratuga reynsla starfsmanna Metal mun nýtast enn betur í þágu viðskiptavina sameinaðs félags“ segir Karl Gunnar Eggertsson, stjórnarformaður Metal.
Frá þessu segir í tilkynningu