Það er ansi heitt niður i Evrópu og hitamet sleginn eða við það að vera sleginn daglega má segja. Þeim hópi ferðafólks sem þykir norðanátt og rigning mjög eftirsóknarverð horfir í vaxandi mæli hingað ,,upp eftir" og er Akureyri svo dæmi sé tekið er efst á óskalista þeirra erlendu ferðalanga sem vilja komast í svalara loftslag. Óhætt er að fullyrða að þessi gerð af ferðafólki fengi helling fyrir sinn snúð á Akureyri í dag.
Fréttastofa RÚV sagði frá því um helgina að það sem við köllum lítt spennandi veður væri að verða auðlind í augum hitaþrjáðra Evrópubúa.
,,Akureyri er efst á lista yfir áhugaverðustu áfangastaði þeirra erlendu ferðamanna sem vilja kæla sig niður í sumar vegna vaxandi hita í löndunum fyrir sunnan okkur. Þetta sýnir úttekt bresku ferðaskrifstofunnar Inghams.
Sókn ferðamanna í norður til að kæla sig niður hefur stóraukist samhliða hverju hitametinu sem er slegið og sumarhita sem fer reglulega vel yfir 30 og jafnvel upp í 40 stig á ferðamannastöðunum í suðri. Þessi straumur ferðamanna í svalara loftslag í kjölfar vaxandi hita á jörðunni hefur fengið nafnið kælifrí eða coolcation á ensku, sem er samruni orðanna Cool og Vacation.
Leitin að þessu orði hefur meira en sexfaldast á Google leitarvélinni í ár og því ákvað breska ferðaskrifstofan Inghams að meta hverjir væru áhugaverðustu áfangastaðir fyrir þá sem vilja flýja sumarhitana og fara í svalara frí. Og þar lenti Akureyri efst á listanum."
Segja má að gamalt en sívinsælt dægurlag með þeim systkinum Ellý og Vilhjálmi, Fátt er svo með öllu illt, komi upp í huga manns.
Getur svo farið að norðan 8 metrar, rigning og hiti upp á 10 stig eigi eftir gera Akureyri að ,,heitum" áfangastað?