Special Tours, fyrirtæki sem staðsett er við gömlu höfnina í Reykjavík og sérhæfir sig í sjóferðum fyrir ferðamenn, hefur nú fært út kvíarnar norður yfir heiðar, en eigendur fyrirtækisins hafa keypt helmingshlut í Arctic Sea Tours á Dalvík. Special Tours bjóða upp á eitt fjölbreyttasta úrval sjóferða á Íslandi, og má þar helst nefna hvalaskoðun, lundaskoðun, sjóstangveiði, norðurljósaferðir og kvöldverðarsiglingar.
Við viljum bjóða fleiri ævintýraferðir á sjó í Eyjafirði og það var okkar markmið að fá einhvern í lið með okkur til að framkvæma það. Viðræður við Special Tours tóku stuttan tíma og það var strax samhljómur í því sem við ætluðum að gera. Við erum því mjög ánægð að tengjast eigendum og starfsfólki Special Tours og spennt fyrir framtíðaruppbygginu í Eyjafirði. segir Freyr Antonsson framkvæmdastjóri og einn af eigendum Arctic Sea Tours
Við sjáum mikil tækifæri í afþreyingu á sjó á utanverðum Eyjafirði. Special Tours hefur verið í fararbroddi við að koma með nýjar afþreyingarferðir á sjó og mun sú þróun verða enn hraðari með tilkomu Arctic Sea Tours inn í hópinn. Við erum þegar með nokkrar ferðir á teikniborðinu á Eyjafirði, allt frá Akureyri og út undir Grímsey. Það er aukin umferð um Dalvík og um Tröllaskagann þar sem leið fjölda ferðamanna liggur ár hvert, og hefur verið mikil og vaxandi uppbygging í ferðaþjónustu á þessum slóðum síðastliðin ár. Við hlökkum til að taka þátt í þessari uppbyggingu með Frey og öðrum heimamönnum." segir Hjörtur Hinriksson, framkvæmdastjóri og einn af eigendum Special Tours